Galdrastelpur er mánaðarlegt myndasögublað sem notið hefur mikilla vinsælda í mörg ár, sérstaklega meðal stúlkna frá 9 ára aldri. Í hverjum mánuði fylgist þú með spennandi sögum um stelpurnar fimm frá Heatherfield. 

Í hverju blaði er einnig ýmiskonar skemmtilegt aukaefni, eins og stjörnuspeki, galdrapróf, þrautir og fróðleikur. 


Mappa að gjöf og tvö blöð á verði eins!

Nýir áskrifendur fá fyrstu tvö blöðin á hálfvirði eða á aðeins 890 kr.  Athugið að greiðandi áskriftarinnar þarf að vera orðinn 18 ára.

Þannig er áskriftin: Í hverjum mánuði færðu nýtt blað um Galdrastelpur inn um blaðalúguna. Blöðin fást ekki á almennum markaði.

Veittur er 3% afsláttur ef greitt er með greiðslukorti. Ef greitt er með greiðsluseðli bætist við 100 kr. seðilgjald við hverja sendingu. Nýir félagar skuldbinda sig aðeins til að taka þrjár sendingar. Eftir það er hægt að segja upp áskriftinni.

Félagar í klúbbnum fá 15% afslátt af almennu verði mánaðarbóka í öðrum klúbbum auk fjölda tilboða í hverjum mánuði sem hægt er að kynna sér hér á edda.is, eða í þjónustumiðstöðinni að Síðumúla 28, Reykjavík.



Vörur : 0
Samtals : 0 kr.
Ganga frá pöntun
Edda útgáfa - Síðumúla 28 - 108 Reykjavík Sími 522 2000